
Jóhann Pétur Fleckenstein
Kynning á kennaranum
Jóhann starfar í dag sem sérfræðingur hjá ráðgjafarfyrirtækinu Attentus. Áður starfaði hann hjá Klettabæ ehf., á tímabilinu 2018 til 2021, sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu fyrir börn og ungmenni, fyrst sem mannauðsfulltrúi og síðan sem mannauðsstjóri. Jóhann hefur lokið meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. í sálfræði frá sama skóla. Hann hefur góða þekkingu á ýmsum sviðum mannauðsmála, s.s. ráðningum, þróun verklaga og stefna, viðhorfskönnunum og jafnlaunavottun.