-
Næsta námskeið hefst
-
Yfirlit
Námskeiðið er hugsað fyrir þá nemendur Stjórnendanámsins sem misstu af þessum tveimur áföngum.
Teknir eru fyrir tveir áfangar.
Gervigreind í hnotskurn áfangi 1.5 |
Í námskeiðinu er farið yfir grunnþætti gervigreindar og hvernig hún vinnur, til að gefa nemendum skilning á styrkleikum hennar og veikleikum. Enn fremur er farið yfir hvaða verkefni gervigreind getur best leyst í heimi fyrirtækja og hvað þarf að varast í notkun hennar, bæði að því er varðar viðkvæm gögn fyrirtækja og að því er varðar þær villur sem gervigreindin getur gert.
|
Í lotunni er farið yfir hvernig stór mállíkön (LLM) virka sem tölfræðilegar upplýsingaverksmiðjur en ekki sannleiksvélar, til að gefa nemendum raunhæfan skilning á getu þeirra og takmörkunum. Efnið tengist námsefni Dr. Ara Kristins og byggir á reynslu fyrirlesara sem verkefnastjóra gervigreindar við Háskólann á Akureyri, ásamt rannsóknum og verkefnum sem hann hefur unnið að frá 2022. Fjallað er um prompt- og context-engineering, meta-prompting og hvernig velja á rétt verkfæri eftir verkefnum, allt með það að markmiði að nemendur geti nýtt gervigreind til að takast á við flóknari áskoranir en áður var mögulegt. Nemendur eru hvattir til að kynna sér frekara efni á www.smarason.is.
Hagnýtar upplýsingar
Námskeiðið er sett upp líkt og áfangarnir í Stjórnendanáminu eru settir upp. Fyrri áfanginn opnar þann 18. mars og hafa nemendur því fimm daga til að kynna sér námsefnið áður en þeir hitta kennarann á Zoom fundi mánudaginn 23. mars klukkan 20:00. Því næst hafa nemendur fram á sunnudaginn 29. mars til að ljúka verkefnum sem fylgja áfanganum.
Á fimmtudeginum 26. mars opnar svo næsti áfangi og hafa nemendur því tækifæri á að skoða það námsefni áður en þeir hitta næsta kennara á Zoom fundi þann 30. mars klukkan 20:00.
Líkt og í fyrri áfanganum hafa nemendur fram á sunnudag til að klára sín verkefni tengd áfanganum.
Nemendur hafa aðgengi að efni áfanganna tveggja til 11. apríl.
Tímabil
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða