Lota 1 – Ég stjórnandinn

Stjórnendanám

Yfirlit

Verð fyrir lotu er 210.000 kr. með snemmskráningarafslætti. Hægt er að greiða með kreditkorti eða bankakröfu. 

 

Fjallar um einstaklinginn í þeirri stöðu sem hann gegnir; „hvers vegna er ég hér", „hversu hæfan tel ég mig vera og hvað þarf ég til að auka hæfni mína?" og „Hver er afstaða mín til fyrirtækis, yfirmanna, samstarfsmanna og undirmanna?"
Farið er í hvernig þú getur bætt þig sem stjórnanda gagnvart starfsfólki þínu og/eða yfirmönnum.

Með nýjum áherslum í náminu er einnig skoðað hvernig stjórnendur geta nýtt gervigreind sem tæki til að efla eigið starf, bæta ákvarðanatöku og auka áhrif í starfi

Lota 1 snýr að þér sem stjórnanda, hvernig þú getur unnið með þína hæfileika og hvernig þú getur bætt þína veikleika.

Fyrirkomulag fjarnáms

Allir fyrirlestrar eru aðgengilegir á netinu. Nemendur hittast einu sinni í viku, utan vinnutíma með kennara í gegnum samskiptaforritið Zoom og miðla af reynslu sinni af viðfangsefni vikunnar til samnemenda sinna. 

Verkefni eru unnin út frá þínum vinnustað og þínum raunveruleika, til þess að hámarka hagnýtingu viðfangsefna hverrar viku. 

Efnisskrá
 

Númer áfanga

Heiti áfanga

Kennari / kennarar

Upphaf áfanga

 

1.1

Inngangur Stjórnendanáms

Ásdís S. Þorsteinsdóttir

4.10.2026

 

1.2

Þekking, leikni og hæfni.

Auðbjörg Björnsdóttir

11.10.2026

 

1.3

Ábyrgð stjórnanda, stjórnunarstíll og menning fyrirtækja

Steinunn Ketilsdóttir

18.10.2026

 

1.4

Tjáning og tækni leikarans

Edda Björgvinsdóttir og Björgvin Franz Gíslason

25.10.2026

 

1.5

Gervigreind

Ari Kristinn Jónsson

8.11.2026

 

1.6

Temjum tæknina

Magnús S. Smáraso

15.11.2026

 

1.7

Samræður, spurningar og samningar

Steinunn Ketilsdóttir

22.11.2026

 

1.8

Viðhorf til breytinga – þjálfunarspurningar

Steinunn Ketilsdóttir

29.11.2026

 

1.9

Sálfræðilegi samningurinn og vinnuálag

Steinunn Ketilsdóttir

6.12.2026

 

1.10

Skipulag vinnumarkaðar, kjarasamningar og réttindi

Jón Rúnar Pálsson

10.1.2027

 

1.11

Lögfræðileg ábyrgð stjórnandans

Jón Rúnar Pálsson

17.1.2027

 

1.12

Hæfni stjórnenda og annarra millistjórnenda.

Steinunn Ketilsdóttir

24.1.2027

 

 
Inntökuskilyrði

Engin inntökuskilyrði, allir eru velkomnir í námið. Það eina sem þarf er virk nettenging og vilji til að verða betri stjórnandi.

Dagskrá

Stjórnendanámið hefst með Lotu 1 sem byrjar 4. október 2026.  Námið er í heild sinni 5 lotur og tekur 2 ár en hægt er að taka það á lengri tíma með pásum. Útskrift hópsins sem hefur nám í október 2026 er í enda maí 2028.

Kennarar
Tímabil
Kostnaður

Lotan kostar 210.000 kr. með snemmskráningarafslætti eftir það kostar hún 230.000 kr. Snemmskráningarafsláttur gildir til 22. september 2026.

Skoðaðu rétt þinn á endurgreiðslu hjá þínu stéttarfélagi. 
 

Umsagnir um námskeið

Þetta er í fyrsta sinn sem ég vinn í fjarnámi enda ekki stundað nám í 30 ár. Kemur mér á óvart hversu frábært þetta er og opnar fullt af dyrum fyrir marga hygg ég.

 

Ég hef náð að skipuleggja mig og styrkja það mikið að ég hef orðið meiri tíma með náminu heldur en var áður en ég byrjaði í því.

 

Mjög skýrt og einfalt viðmót í fjarkennslunni og vel farið yfir í upphafi hvernig allt virkar. Mjög gott aðgengi að umsjónarmanni sem svarar öllum fyrirspurnum um hæl og passar vel upp á að allt gangi upp. Námsefni hefur alltaf verið eitthvað sem maður getur nýtt sér, ekkert óþarft..

 

 

Upphafsdagur
Upphafsdagur 04 Okt 26
TímalengdStjórnendanám
Verðkr 210.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða